Miðvikudaginn 7 janúar 2026 fór fram verðlaunaafhending til sjálfboðaliða og íþróttafólks hjá ÍR.
Þau sem að fengu verðlaun hjá keiludeildinni voru:

Keilari ársins 2025

Linda Hrönn Magnúsdóttir
Linda hefur staðið upp úr á árinu 2025 sem framúrskarandi keilari og hefur verið valin í mörg landsliðsverkefni bæði öldunga sem og í íslenska kvennalandsliðinu. Linda varð Íslands- og bikarmeistari með liði sínu ÍR TT á árinu 2025. Linda keppti líka í Úrvalsdeildinni í keilu þar sem að hún hafði unnið sér rétt til þess með frábærri spilamennsku á árinu á undan.
Linda var í landsliði Íslands sem vann brons á HM Öldunga 65 ára og eldri. Linda varð í 3 sæti í Íslandsmóti einstaklinga í kvennaflokki og varð einnig í 3 sæti í Íslandsmóti öldunga. Varð í 2 sæti í Íslandsmóti para ásamt Gunnari Þór Ásgeirsyni.

Gunnar Þór Ásgeirsson
Gunnar varð Íslandsmeistari með liði sínu ÍR-PLS og í öðru sæti í bikarkeppni með liði sínu ÍR PLS.
Gunnar Þór keppti líka í Úrvalsdeildinni þar sem hann vann sér líka rétt með frábærri spilamennsku á síðasta ári. Gunnar Þór var valin í landsliðsverkefni á árinu í HM karla sem fram fór í Álaborg í Danmörku, Gunnar Þór lenti í 3 sæti í Íslandsmóti einstaklinga í karlaflokki, varð Íslandsmeistari í tvímenningi ásamt Hafþóri Harðarsyni og var einnig í öðru sæti í Íslandsmóti para ásamt Lindu Hrönn Magnúsdóttur.

Gull Merki


Jóhann Ágúst Jóhannsson
Jóhann hefur unnið störf í þágu félags í langan tíma. Situr hann núna í stjórn Keilusambandins fyrir hönd félags.
Halldóra Íris Ingvarsdóttir
Halldóra hefur unnið störf í þágu félags í langan tíma. Hefur til að mynda setið í stjórn keiludeildarinnar frá árinu 2018 til dagsins í dag.

Silfurmerki

Halldóra Björk Þórarinsdóttir
Halldóra hefur starfað við keiludeildina bæði sem sjálfboðaliði og núna stjórnarmaður og er harður foreldri í alls konar fjáröflunum og hefur staðið sig mjög vel
Laufey Sigurðardóttir
Laufey hefur starfað í fyrir félagið í áraraðir og unnið í þágu félagsins og situr meðal annars í stjórn keiludeildarinnar í dag.
Ágústa Alda Traustadóttir
Ágústa er öflugur sjálfboðaliði sem hefur verið að starfa í þágu félagsins fyrir okkur í keiludeilinni bæði með börnin okkar og alls konar fjáraflanir og mótaumsjón
Nína Þórunn Sigurdórsdóttir
Nína er öflugur sjálfboðaliði sem hefur verið að starfa í þágu félagsins fyrir okkur í keiludeilinni bæði með börnin okkar og alls konar fjáraflanir og mótaumsjón

HM Merki
Olivia Clara Steinunn Linden
Olivia er ein af okkar efnilegastu kvennkeilurum og varð í 28 sæti á Heimsmeistaramót Ungmenna
(World Youth Championship) sem var haldið í Helsingborg í Svíþjóð 15 – 22 Júní 2025. Einnig kepti hún á
Heimsmeitarmóti landsliða sem var haldið í Hong Kong 24.11 – 5.12.2025 (2025 IBF World Championship)
Hún býr í Svíþjóð og keppir fyrir hönd Íslands.
Nanna Hólm Davíðsdóttir og Linda Hrönn Magnúsdóttir
Nanna og Linda Hrönn keptu báðar á Heimsmeitarmóti landsliða sem var haldið í Hong Kong 24.11 – 5.12.2025 (2025 IBF World Championship)

Kristalspinni keiludeildar ÍR
Kristalspinni eru verðlaun fyrir þá sem að ná sínum fyrsta 300 leik undir merkjum keiludeildar ÍR.
Í ár fékk Hinrik Óli Gunnarsson kristalpinna fyrir 300 leik sem að hann náði í meistaradeild KLÍ 2025.
Hinrik Óli Gunnarsson er einn af okkar efnilegustu keilara á uppleið og var í landsliðshópnum og endaði liðið í 12. Sæti á Heimsmeistaramóti Ungmenna fyrir U21 sem var halið í Incheon í Suður Kóreu 7 – 18 júlí 2024.